Smurolíuskipti og smurolíurannsóknir
Þegar mótor gengur verður olían fyrir ýmsum áhrifum sem draga úr smureiginleikum hennar. Það helsta sem rýrir smureiginleika olíunnar eru óhreinindi frá brennslunni, efnisagnir sem fram koma við gang mótorsins ásamt eldsneytisolíu sem kemst í sveifarhúsið.
Margir vélaframleiðendur smærri véla gefa upp ákveðinn keyrslutíma á smurolíuna og er vélgæslumönnum bent á að lúta þeim fyrirmælum.
Öðru gegnir um stærri vélar þar sem smurolíumagnið er mun meira. Þar er ekki gefinn neinn ákveðinn keyrslutími á olíuna heldur verður að athugast hverju sinni í hvaða ástandi smurolían er. Til að fá örugga vitneskju um ástand smurolíunnar verður að rannsaka hana á efnarannsóknarstofu.
Þegar olíusýni er tekið skal hafa eftirfarandi í huga:
1. Að fá þar til gerða brúsa og merkimiða fyrir sýnið hjá útibússtjóra Olís á viðkomandi stað.
2. Að olían, sem rannsaka á, sé við eðlilegt vinnuhitastig þegar sýnið er tekið.
3. Að sýnið sé tekið á stað þar sem mikil hreyfing er á olíunni.
4. Regluleg sýnataka gefur góða yfirsýn yfir ástand vélar eða vélabúnaðar.
5. Útibússtjóri Olís á viðkomandi stað sér um að koma sýninu til rannsóknarstofu.
jonust.jpg)