Úthafsþjónusta

Úthafsþjónusta

Olís býður eldsneyti á úthafinu.

Á norðlægum slóðum býður Olís eldsneyti í Barentshafi, Noregshafi, á miðum austur og vestur af Grænlandi, á Reykjaneshrygg, Flæmingjagrunni og Hatton Rockall-svæðinu.

Sunnar á hnettinum bjóðum við eldsneyti undan vesturströnd Afríku (frá Marokkó í norðri og suður til Namibíu) og undan ströndum Chile.

Eldsneytið á þessum stöðum er afgreitt úr birgðaskipum sem dönsku fyrirtækin O.W. Icebunker og O.W. Bunker gera út. Birgðaskipin eru reglulega á ferðinni, á þeim tímum og svæðum sem veiðar eru stundaðar.

Birgðaskipin eru alltaf með skipagasolíu (Marine Gasoil, brennisteinn ≤ 0,2% og density ≤ 0,86). Boðið er upp á svartolíu (yfirleitt 180 cSt og léttari) á flestum svæðanna.

Loks má geta þess að um borð í birgðaskipunum eru yfirleitt nokkrar tunnur af vélasmurolíu (SAE 30 og 40), svona til að menn geti „reddað sér“ ef eitthvað kemur uppá.

Olís býður þjónustu í höfnum utan Íslands.

Olís býður viðskiptavinum sínum að hafa milligöngu um eldsneytiskaup í höfnum um allan heim. Olís notar þá ýmist eigin viðskiptasambönd á hverjum stað eða nýtur liðsinnis O.W. Bunker.

Olís getur einnig haft milligöngu um kaup á smurolíu og smurefnum í flestum höfnum. Rétt er að nefna að það er mjög misjafnt hvaða tegundir olíu er hægt að fá á hverjum stað og eins er afgreiðslutími oft talsvert lengri en menn eiga að venjast á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Leifsson, sími 515-1252 og/eða netfang: bunkers@olis.is

 





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

skiphaus_nytt2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica