QR-merki fyrir Farsíma
Í auglýsingum Olís munu framvegis birtast QR-merki fyrir farsíma
Umrædd strikamerki heita á frummálinu QR-code eða Quick Response code. Fyrirtækið Denso Wave kom upphaflega með hugtakið og markmið þess var að merkin og innihald þeirra yrðu afkóðuð á miklum hraða rafrænt.
Virkni:
Það telst til undantekninga ef farsímar í dag eru ekki með innbyggðar myndavélar. Myndavélin ásamt sér forriti eða App sér um að ná mynd af merkinu og lesa úr þá virkni sem tiltekið merki er gert fyrir.
Dæmi um virkni eru:
- Tengjast vefsíðu
- Niðurhala tónlist
- Hringja í símanúmer
- Senda Email
Það eru nokkur forrit í boði til að nýta þessa tækni og eru þau mismunandi fyrir hverja tegund síma.
Hér eru tenglar til að finna algengustu tegundir þessa forrita og er hægt að velja eftir tegund síma:
Þessi listi er ekki tæmandi og eru fleiri valmöguleikar í boði séu einhverjar að ofantöldum tenglum valdir.
Nánari upplýsingar um QR-merki má sjá hér á síðu Wikipedia
