Dreifing eldsneytis
Til þess að tryggja viðskiptavinum Olíuverzlunar Íslands hf. enn skilvirkari og öruggari þjónustu hefur félagið ákveðið að innleiða þjónustustaðla vegna dreifingar á fljótandi eldsneyti frá olíubíl.
Meginreglan verður sú að eldsneyti sem pantað er fyrir lokun skrifstofu verður afgreitt daginn eftir (sjá skilgreiningu dreifingarsvæða). Með þessu næst að skipuleggja dreifinguna með rekstraröryggi viðskiptavina að leiðarljósi, þar sem olíubílarnir geta fylgt fyrirfram ákveðinni dreifingaráætlun sem byggist á vörupöntunum frá viðskiptavinum frá deginum áður.
| Afgreitt er á tæki og tanka með eftirfarandi afhendingartíma: | |||
|---|---|---|---|
|
Tegund |
Svæði I |
Svæði II |
Svæði III |
|
Lituð gasolía |
Pantað fyrir lokun skrifstofu, afgreitt daginn eftir |
Pantað fyrir lokun skrifstofu, afgreitt daginn eftir |
Afgreitt einn til tvo daga í viku samkvæmt áætlun |
|
Aðrar tegundir |
Pantað fyrir lokun skrifstofu, afgreitt daginn eftir |
Afgreitt einn til tvo daga í viku samkvæmt áætlun |
Afgreitt einn til tvo daga í viku samkvæmt áætlun |
Hægt er að fá afgreiðslu beint á tæki á svæði I og II og á stærri vinnusvæði samkvæmt samkomulagi á svæði III.
- Svæði I: Eftirtaldir þéttbýliskjarnar: Höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Reyðarfjörður, Eskifjörður, Egilsstaðir, Fellabær, Ísafjörður.
- Svæði II: Eftirtaldir þéttbýliskjarnar: Keflavík, Njarðvík, Garður, Sandgerði, Grindavík, Akranes, Borgarnes, Ólafsvík, Rif, Hellissandur, Grundarfjörður, Stykkishólmur,Patreksfjörður, Tálknafjörður, Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík, Hnífsdalur, Blönduós, Sauðárkrókur, Skagaströnd, Siglufjörður, Dalvík, Ólafsfjörður, Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Hornafjörður, Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði, Þorlákshöfn, Hella, Hvolsvöllur, Vík, Vestmannaeyjar
- Svæði III: Dreifbýli og áður ótaldir þéttbýliskjarnar.
Tekið er við pöntunum fyrir fljótandi eldsneyti fyrir allt landið frá kl. 07.00 til 22.00 virka daga og kl. 08.00 til 16.00 á laugardögum. Símanúmer dreifingarskrifstofu er 550-9933, eða á pantanir@odr.is. Hægt er að festa pantanir á ákveðna daga, þannig að ekki þurfi að panta í hvert skipti. Einnig er hægt að panta eldsneytið beint hjá birgðastöðvum og olíubílum Olíudreifingar á landsbyggðinni frá kl. 08.00 til 17.00 á virkum dögum:
- Snæfellsnes: 860-6968
- Sunnanverðir Vestfirðir: 892-7793
- Norðanverðir Vestfirðir: 456-5530
- Norðurland: 461-4070 Tölvupóstur: akureyri@odr.is
- Norð-Austurland: 862-4127
- Austfirðir: 474-1525 Tölvupóstur: austurland@odr.is
- Seyðisfjörður: 862-4125
- Höfn og Djúpivogur: 898-4716
- Suðurland: 863-2568
- Vestmannaeyjar: 897-0305
Afgreiðslutími er frá kl. 08.00 til 17.00 virka daga og að auki frá kl. 08.00 til 16.00 á laugardögum á höfuðborgarsvæðinu. Komi upp neyðartilfelli munum við leitast við að afgreiða með skemmri fyrirvara en fram kemur í ofangreindum skilmálum (þ.e. samdægurs), en þá gegn aukagjaldi, 2.500 kr. m. vsk. per afgreiðslu. Einnig er hægt að fá afgreiðslu utan skilgreinds þjónustutíma gegn aukagjaldi, 13.000 kr. m. vsk

