Lykladælur

ÚtgerðaRþjónusta

Hvar sem þú ert á landinu eða á hafi úti, er alltaf ein auðveld leið til að fá úrlausn mála sem snerta útgerðina. Þú hringir í 515 1100 og starfsfólk Olís finnur lausn sem hentar þér.

Útgerðarþjónusta Olís býður hagkvæmar heildarlausnir, þú færð úrvalsþjónustu með eldsneyti, smurolíur og hreinsiefni á birgðastöðvum og þjónustustöðvum Olís um land allt en einnig umfangsmikið úrval rekstrarvara til daglegs reksturs.


Heildarlausn í einu símanúmeri

Útgerðarþjónusta Olís er víðtæk og hraðvirk og býður sjávarútvegsfyrirtækjum heildarlausnir.
Hringdu í 515 1100 - eitt númer, heildarlausn.


Örugg og hraðvirk þjónusta

Öflugt flutnings- og dreifingarkerfi Olís byggist á birgða- og þjónustustöðvum um land allt sem svara kalli þínu þegar þú þarft á þeim að halda. Vörur eru alltaf afhentar innan 36 klukkustunda, hvar sem er á landinu.

  • Olís býður hnitmiðað vöruval á hagstæðu verði, þekktar og viðurkenndar rekstrarvörur eins og Champion, Relavit, Powles-Hunt og United.
  • Þjónusta Olís felst ekki síst í fræðslu og þjálfun starfsmanna viðskiptafyrirtækja Olís í notkun vöru og búnaðar sem fyrirtækið selur.
  • Þjónustustöðvar Olís um land allt tryggja þér alltaf örugga viðhaldsþjónustu. Olís hefur samið við viðurkennd þjónustufyrirtæki um viðhald og viðgerðir á tækjabúnaði.




Útlit síðu:

Tungumál

Skipa(thorn)jonust
Þetta vefsvæði byggir á Eplica