Reikningsviðskipti

Reikningsviðskipti hjá Olís

Ef óskað er eftir reikningsviðskiptum við Olís skal haft samband við starfsmenn fjárreiðudeildar á aðalskrifstofu Olís í síma 515 1000 eða næsta umboð/útibú. Um stofnun viðskiptareikninga gilda ákveðnar vinnureglur og veitir fjárreiðudeild upplýsingar um þær.

Reikningsviðskipti án Olískorts

Við hverja úttekt er gerður reikningur. Í lok mánaðarins eru allir reikningar sendir til viðskiptamanns.
Strax á eftir er sendur greiðsluseðill með áföstu reikningsyfirliti, þar sem hreyfingar mánaðarins eru tilgreindar. Gjalddagi er 25. dagur næsta mánaðar.

Reikningsviðskipti með Olískorti

Allar úttektir mánaðarins eru sundurliðaðar á einn reikning sem er sendur til viðskiptamanns í lok mánaðar, ásamt greiðsluseðli. Ef viðkomandi er með mörg Olískort fær hann einn reikning fyrir hvert þeirra en einn greiðsluseðil. Gjalddagi er 25. dagur næsta mánaðar.

Blönduð reikningsviðskipti

Þó viðskiptamaður sé í reikningsviðskiptum bæði með og án Olískorts, fær hann einungis sendan einn greiðsluseðil.

Greiðslur er einnig hægt að inna af hendi með skuldfærslu á kreditkort.





Útlit síðu:

Tungumál

Skipa(thorn)jonust
Þetta vefsvæði byggir á Eplica