Frostlogur

Frostlögur

FROSTLÖGUR Leiðbeiningar um notkun frostlagar Bifreiðar og önnur farartæki verða sífellt flóknari og viðhald þeirra hlýtur að taka mið af slíkri þróun. Á það m.a. við um frostlög. Sökum þess varma sem ekki nýtist þegar eldsneyti knýr vél myndast hiti sem beisla verður til að koma í veg fyrir að vélin ofhitni. Það er gert með kælikerfi þar sem kælivökvi hringrásar og flytur varma frá vélinni til viftu er loftkælir vökvann. Algengasti kælivökvi í vélum farartækja á landi er etýlenglýkól (MEG (Monoethyleneglycol)) sem í daglegu tali er kallað frostlögur. Frostlögur getur þó átt við fleiri efni en etýlenglýkól. Til skamms tíma var það venja að frostlögur væri hafður á vélum bifreiða einungis yfir vetrarmánuðina og var þá mikið notaður alkóhólfrostlögur. Var frostlögurinn tekinn af strax og voraði. Nú á dögum er frostlögur á kælikerfum bifreiða allt árið einkum þar sem hlutverkum hans hefur fjölgað í takti við þróun hans. Auk þess að flytja varma hindrar frostlögurinn að frjósi á vélinni, eins og nafnið gefur til kynna, og enn fremur ver hann vélarhluta gegn ryðmyndun og tæringu. Hér að neðan er samantekt yfir helstu eiginleika sem hefðbundinn frostlögur fyrir bifreiðar hefur. 1. Lágt frostmark. 2. Vörn gegn ryðmyndun og tæringu í kælikerfi bifreiðarinnar. 3.  Veldur ekki tjóni á lakki bifreiðarinnar né öðrum hlutum hennar svo sem vatnskassa, miðstöð, slöngum, pakkningum og slíku. 4. Suðumark við u.þ.b. 200°C og uppgufun frá kælikerfinu þ.a.l. mjög lítil. 5. Hindrun froðumyndunar. 6. Mjög hægfara efnabreytingar. 7. Engin eldhætta. 8. Má nota jafnt á bensín- og dísilvélar. Besta vernd fæst með 50% blöndu (frostlögur og vatn í hlutföllunum 1 : 1) sem gefur frostþol niður í −37°C. Framleiðendur mæla með að skipt sé um hefðbundinn frostlög eftir eins árs notkun en í mörgum tilfellum mun hann endast lengur en það. Þegar bæta á frostlegi á kælikerfi bifreiðar eða endurnýja gildir eftirfarandi. A) BÆTT Á KERFIÐ Ef nýlegur frostlögur er á kerfi bifreiðarinnar er einfaldast að athuga fyrst styrkleikagráðu hans og bæta síðan við, ef á þarf að halda, þar til því frostþoli kælivökvans sem æskilegt þykir er náð. Tryggja verður að nægilegt vatnsmagn sé á kerfinu áður en bætt er á það. Flestar nýrri gerðir bifreiða eru útbúnar með háþrýstikælikerfi en nægilegur gufuþrýstingur fæst ekki ef of lítið vatn er á því. Frostlögurinn einn og sér myndar ekki fullnægjandi þrýsting og of lítið vatn á kælikerfi bifreiðarinnar getur því takmarkað virkni þess. B) SKIPT UM FROSTLÖG Ef frostlögur á bifreið er orðinn gamall er hætt við að sýrumyndun sé farin að valda tæringu í kælikerfinu sem getur haft í för með sér skemmdir á vél, vatnskassa, miðstöð og dælu. Hægt er að fá vísbendingu um sýrustig frostlagarins með pH-pappír (Universal Indikatorpappír) en litur hans eftir vætingu í leginum gefur til kynna hvert sýrustigið er. Ef hann er súr (pH minna en 7) eða eldri en góðu hófi gegnir er nauðsynlegt að skipta algjörlega um frostlög á kerfinu. Í því sambandi skal eftirfarandi haft í huga. a)  Mjög mikilvægt er að kælikerfi bifreiðarinnar sé algjörlega tæmt. Í þeim tilgangi skal tryggja að tæmingarhanar séu vel opnir. b) Ráðlegt er að skola kælikerfið út með hreinu, volgu vatni. c)  Áfylling: Einfaldast er að setja tilbúna blöndu á kælikerfið (50% frostlög og 50% vatn). Þegar blöndu hefur verið fyllt á er vélin gangsett og látin snúast í nokkrar mínútur til þess að kerfið lofttæmist. Síðan er blöndu bætt við og yfirborðið í áfyllingarboxinu látið staðnæmast nokkru fyrir neðan yfirfallið þannig að gert sé ráð fyrir þenslu frostlagarins þegar hann hitnar. Ef kerfið hefur verið tæmt og notaður er óblandaður frostlögur er gott ráð að láta á það helming þess vatns sem kerfið tekur, síðan frostlöginn og fylla að lokum upp með vatni. d)  Síðari áfyllingar: Ef kælikerfið fer að leka þarf að bæta á það blöndu af frostlegi og vatni. Ef minnkar á kælikerfinu án leka er ástæðan að öllu jöfnu uppgufun vatns. Í slíkum tilfellum er bætt á kerfið hreinu vatni. LANGTÍMA FROSTLÖGUR (Extended Life Antifreeze Coolant) Á síðustu árum hefur færst í vöxt notkun svokallaðs langtíma frostlagar en hann á ekki að þurfa að endurnýja fyrr en í fyrsta lagi eftir 5 ára notkun bifreiðar samkvæmt upplýsingum framleiðenda. Það sem helst greinir langtíma frostlög frá hefbundnum er að sá fyrrnefndi inniheldur lífræn tæringarhindrandi efni. Karboxýlsýrur (Mono- and di-carboxylic acids) eru þar í aðalhutverki. M.a. hefur sýnt sig að langtíma frostlögur veitir kælibúnaði véla í fólksbifreiðum vörn á meðan 250.000 km eru lagðir að baki en það samsvarar akstri í um 2.000 klst. Þegar flutningabifreiðar og önnur stærri farartæki eru annars vegar nær vörnin til 650.000 km sem jafngilda u.þ.b. 8.000 klst. akstri. Þar sem langtíma frostlögur byggir á etýlenglýkóli á ofangreint við um hann ekki síður en hefðbundinn frostlög. Neðangreint skal þó undirstrikað til leiðbeiningar þeim sem nota langtíma frostlög. ?  Mikilvægt er að kælikerfið sé vandlega skolað áður en langtíma frostlegi er fyllt á í fyrsta skipti. ?  Til að viðhalda virkni langtíma frostlagar er ráðlegt að halda styrk vökvans í 50% á móti vatni (1 : 1). ?  Framleiðandi langtíma frostlagar ábyrgist að hann megi nota í vélar framleiddar úr steypujárni eða áli eða blöndu af báðum og enn fremur í kælikerfi úr áli eða koparblöndum. Sérstaklega er mælt með langtíma frostlegi í hátæknivélar þar sem ál gegnir mikilvægu hlutverki sem vörn við hátt hitastig. ?  Hámarks vörn gegn tæringu næst með 50% hlutfalli langtíma frostlagar eins og að ofan greinir. Óráðlegt er að styrkur efnisins sé minni en 33% í kæliupplausninni ef tryggja á fullnægjandi tæringarvörn. Sá styrkur nægir til frostþols niður í −20°C. Blöndur sem innihalda yfir 70% styrk efnisins eru ekki ráðlagðar. Hámarks frostþol (um −69°C) næst með 68% styrk. Fari styrkur efnisins yfir það er afleiðingin minnkandi frostþol. Rétt er að taka fram að mismunandi litir eru notaðir til að aðgreina hefðbundinn frostlög frá langtíma frostlegi. Algengt er að hinn hefðbundni sé blár eða grænn að lit en langtíma appelsínugulur eða bleikur. ÚR ÖRYGGISLEIÐBEININGUM 3. Varúðarupplýsingar: Hættulegt við inntöku, við innöndun og í snertingu við húð. Inntaka getur valdið dauða. Lítil hætta er á innöndun nema efnið sé heitt eða úðist, þar sem það gufar ekki auðveldlega upp. 6. Efnaleki: Látið efnið ekki berast í niðurföll, vötn eða jarðveg þar sem það kemst í grunnvatn. Notið ísogsefni fyrir vökva til að hefta og hreinsa upp efni sem fer niður og látið í viðeigandi og merkt ílát til förgunar. 7. Meðhöndlun ? : Fylgið leiðbeiningum framleiðanda véla eða tækja þegar um ofhitnun er að ræða. Forðist snertingu við húð og augu og innöndun gufu eða úða. ? 12. Hættur gagnvart umhverfinu: Etýlenglýkól er ekki talið skaðlegt umhverfinu í því magni sem það er venjulega notað af neytendum. Látið efnið þó ekki berast í niðurföll, vatn eða jarðveg, þar sem það getur spillt vatni og haft áhrif á lífverur. ? GEYMIST ÞAR SEM BÖRN NÁ EKKI TIL !!! Ath. að fyrir kælikerfi bifreiða er best að nota 50% frostlög á móti 50% vatni til að fá sem besta vörn gegn tæringu og ryðmyndun. Einnig er ráðlegt að skipta um blöndu á bifreiðinni einu sinni á ári en þó aldrei sjaldnar en á tveggja ára fresti. Jafnframt þessu eru bifreiðaeigendurnir hvattir til að fylgja leiðbeiningum bifreiðaframleiðenda.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica