Hledslutaki CTEK 3600

Hleðslutæki CTEK 3600

MULTI XS 3600 Hleðslutækið sem ætti að vera til á hverju heimili MULTI XS 3600 er alhliða fyrirferðarlítið hleðslutæki, sem er auðvelt að nota fyrir alla heimilisbíla. Sérstakur kuldahamur þýðir að hleðsla á köldum vetrardögum er líka vandræðalaus. MULTI XS 3600 fullnægir öllum hleðsluþörfum heimilisins, því það hleður allar gerðir 12V rafgeyma. 5 ÁSTÆÐUR TIL AÐ VELJA CTEK HLEÐSLUTÆKI 1 Mikilvægara en þú heldur. Rafgeymar þurfa viðhald og eftirlit til að tryggja að þeir virki og endist lengi. 2 Einfaldara getur það ekki verið. CTEK hleðslutækin eru alveg sjálfvirk og búin pólvíxlunarvörn og frábær fyrir langtímahleðslu. 3 Fara vel með búnaðinn Rafeindabúnaður verður sífellt algengari og mikilvægari ? CTEK hleðslutæki skemma ekki rafeindabúnað. 4 Hönnuð fyrir öryggi Ekki þarf að hafa áhyggjur af neistum, pólvíxlun eða skammhlaupi. 5 Gæðin eru tryggð Með löngum ábyrgðartíma og ströngum kröfum um virkni gerir CTEK sitt ítrasta til að létta notendum lífið.


Rafgeymar

Þýsku Deta rafgeymarnir heita í dag Exide

Fyrirtækin sameinuðust árið 1997 og nafninu á geymunum var breytt fljótlega í kjölfarið. Exide vörumerkið er yfir 100 ára gamalt.

Exide rafgeymar eru viðurkennd hörkutól og sérstaklega hannaðir til að þola mikið álag.

Exide selur allar stærðir og gerðir af lyftarafgeymum og hleðslutækjum.

Exide lyftararafgeymar eru seldir með fjögurra ára ábyrgð.

Exide rafgeymar eru framleiddir fyrir nánast allar stærðir og gerðir farartækja.

Með tilkomu sífellt flóknari og fjölbreyttari farartækja sem eru búin eru sérhæfðum rafbúnaði, hefur þörfin fyrir öfluga og trausta rafgeyma aukist.

Bílar | Bátar | Skip | Neyðarlýsing | Orkuver | Lyftarar | Fellihýsi | Mótorhjól | Hjólastólar | Rafmagnsbílar.

Hafðu samband við sérfræðinga Olís og fáið nánari upplýsingar um yfirburði Exide raftgeyma.

Nánari upplýsingar beint í síma 515 1100.



Exide
Þetta vefsvæði byggir á Eplica