Hledslutaki CTEK 7000

Hleðslutæki CTEK 7000

MULTI XS 7000 Alhliða hleðslutæki MULTI XS 7000 er hleðslutækið fyrir húsvagninn, bílinn eða bátinn. Hentar til notkunar allt árið um kring. Í SUPPLY-ham gefur hleðslutækið afl þó geymirinn sé fjarlægður. SUPPLY-hamur er því ómissandi þegar skipt er um geymi, kemur í veg fyrir að stillingar í tækjum og búnaði detti út. RECOND-hamur er til að jafna sýruna í geyminum, en sýran á það til að lagskiptast ef geymir verður gersamlega tómur. Með jöfnun sýrunnar endurnýjast afl geymisins og líftími lengist. 5 ÁSTÆÐUR TIL AÐ VELJA CTEK HLEÐSLUTÆKI 1 Mikilvægara en þú heldur. Rafgeymar þurfa viðhald og eftirlit til að tryggja að þeir virki og endist lengi. 2 Einfaldara getur það ekki verið. CTEK hleðslutækin eru alveg sjálfvirk og búin pólvíxlunarvörn og frábær fyrir langtímahleðslu. 3 Fara vel með búnaðinn Rafeindabúnaður verður sífellt algengari og mikilvægari ? CTEK hleðslutæki skemma ekki rafeindabúnað. 4 Hönnuð fyrir öryggi Ekki þarf að hafa áhyggjur af neistum, pólvíxlun eða skammhlaupi. 5 Gæðin eru tryggð Með löngum ábyrgðartíma og ströngum kröfum um virkni gerir CTEK sitt ítrasta til að létta notendum lífið.


Rafgeymar

Þýsku Deta rafgeymarnir heita í dag Exide

Fyrirtækin sameinuðust árið 1997 og nafninu á geymunum var breytt fljótlega í kjölfarið. Exide vörumerkið er yfir 100 ára gamalt.

Exide rafgeymar eru viðurkennd hörkutól og sérstaklega hannaðir til að þola mikið álag.

Exide selur allar stærðir og gerðir af lyftarafgeymum og hleðslutækjum.

Exide lyftararafgeymar eru seldir með fjögurra ára ábyrgð.

Exide rafgeymar eru framleiddir fyrir nánast allar stærðir og gerðir farartækja.

Með tilkomu sífellt flóknari og fjölbreyttari farartækja sem eru búin eru sérhæfðum rafbúnaði, hefur þörfin fyrir öfluga og trausta rafgeyma aukist.

Bílar | Bátar | Skip | Neyðarlýsing | Orkuver | Lyftarar | Fellihýsi | Mótorhjól | Hjólastólar | Rafmagnsbílar.

Hafðu samband við sérfræðinga Olís og fáið nánari upplýsingar um yfirburði Exide raftgeyma.

Nánari upplýsingar beint í síma 515 1100.



Exide
Þetta vefsvæði byggir á Eplica