Hleðslutæki CTEK 14000
MULTI XT 14000 Afl fyrir stórvirkar vélar með 24V rafgeymum MULTI XT 14000 hefur sömu eiginleika og MULTI XS 25000 en er gert fyrir 24V geyma. Það er því rétta tækið fyrir rútur, flutningabíla, stærri báta og verkstæði sem þjónusta þessi farartæki. Í SUPPLY-ham gefur hleðslutækið afl þó geymirinn sé fjarlægður og kemur þannig í veg fyrir að stillihngar í tækjum og búnaði detti út. RECOND-hamur er til að jafna sýruna í geyminum, en sýran á það til að lagskiptast ef geymir verður gersamlega tómur. Með jöfnun sýrunnar endurnýjast afl geymisins og líftími lengist. 5 ÁSTÆÐUR TIL AÐ VELJA CTEK HLEÐSLUTÆKI 1 Mikilvægara en þú heldur. Rafgeymar þurfa viðhald og eftirlit til að tryggja að þeir virki og endist lengi. 2 Einfaldara getur það ekki verið. CTEK hleðslutækin eru alveg sjálfvirk og búin pólvíxlunarvörn og frábær fyrir langtímahleðslu. 3 Fara vel með búnaðinn Rafeindabúnaður verður sífellt algengari og mikilvægari ? CTEK hleðslutæki skemma ekki rafeindabúnað. 4 Hönnuð fyrir öryggi Ekki þarf að hafa áhyggjur af neistum, pólvíxlun eða skammhlaupi. 5 Gæðin eru tryggð Með löngum ábyrgðartíma og ströngum kröfum um virkni gerir CTEK sitt ítrasta til að létta notendum lífið.
