Lotoxane
Lotoxane olíuhreinsaflokkurinn er öruggur valkostur í stað ósoneyðandi, klóblandaðra kolvetnisleysiefna. Lotoxane, sem var búið til af þróunardeild Arrow, var upphaflega hannað fyrir herskipaflota Bretlands, til að hreinsa rafeinda- og raftæki í kafbátum. Í svo þröngu rými er ekki óhætt að nota hefðbundin leysiefni til að hreinsa og fjarlægja olíu og feiti, vegna hættulegra gufa og eituráhrifa sem af þeim stafa. Eftir að hafa gengið í gegnum strangt prófunarferli var Lotoxane viðurkennt af öllum þremur greinum hersins og samþykkt af NATO. Efnið er nú í notkun vítt og breitt um Bretland hjá fyrirtækjum eins og GEC Marconi, Rolls Royce, British Aerospace og erlendis af hinum Konunglega flugher Sádí Arabíu sem og í olíuiðnaðinum í Kúvæt, Katar, Barein og Óman. Lotoxane er kjörinn valkostur við klórblönduð kolvetnisleysiefni. Það er óhætt að nota efnið á málma, plastefni og málaða fleti, þar með talda fleti með klórunninni gúmmíáferð. Efnið inniheldur einnig svo tær leysiefni að það telst jafnvel henta til notkunar í kjarnorkuverum. LOTOXANE FRAMLEIÐSLULÍNAN Lotoxane - 29266 (600ml úðabrúsi) - 29048 (5L brúsi) - 29022 (20L brúsi) Óeldfimur, alhliða olíuhreinsir, á leysiefnagrunni, sem hlotið hefur samþykki og viðurkenningu innan iðnaðargeirans og breska hersins. Efnið hentar á fjölmargar gerðir málma, plastefna og lakkaðra flata. Einnig er hægt að nota efnið áður en viðkomandi flötur er lakkaður, þar sem það skilur ekki eftir sig neinar leifar eftir að það þornar. Tilvalið í úðabrúsa, ídýfutanka, olíuhreinsimiðstöðvar og hátíðnihreinsikerfi (ultrasonic cleaning). Kveikjumark er 62˚C. Lotoxane Fast - 29263 (500ml m/úðara) - 29049 (5L brúsi) - 29026 (20L brúsi) Gufar upp þrisvar sinnum hraðar en venjulegt ?Lotoxane?. Kveikjumark er 40˚C. Lotoxane XF - 29265 (600ml úðabrúsi) - 290525 (5L brúsi) Olíuhreinsir með einstaklega hraða uppgufun. Gufar upp sex sinnum hraðar en ?Lotoxane?. Kveikjumark er 27˚C. Lotoxane Triple F - 29053 (5L brúsi) Lyktarlítið leysiefni sem gufar hratt upp. Það hentar sérstaklega vel til reglubundinna hreingerninga og viðhalds. Gufar upp 15 sinnum hraðar en venjulegt ?Lotoxane?. Lotoxane HD - 29050 (5L brúsi) - 29329 (20L brúsi) Afkastamikið hreinsiefni sem fjarlægir feiti, kolefni og olíur með skjótum hætti. Einnig tilvalið til að fjarlæga lakkleifar og ?flúx? af prentrásaborðum. Efnið er kjörið í ídýfuþvott, hringrásarþvott og notkun í olíuhreinsimiðstöðvum. Lotoxane Orange - 29264 (500ml m/úðara) - 29051 (5L brúsi) Mjög afkastamikil blanda, sem er styrkt með terpenefnum til að ná enn öflugri þrifeiginleikum. Tilvalið í allar olíu- og tjöruhreinsanir, þar með talið að ná mólýbden bísúlfít-feiti af legum og þungavinnuvélum
