Vanellus C6 Global Plus
Endingargóð fjölnota smurolía sem sparar eldsneyti
Notkun
VANELLUS C6 GLOBAL PLUS er afar endingargóð hágæðasmurolía á dísil- og bensínvélar sem sparar eldsneyti til notkunar í aflmiklum vélum í þungaflutningabílum, sendibílum og fólksbílum með og án forþjöppu.
Mælt er sérstaklega með VANELLUS C6 GLOBAL PLUS á blandaðan bílaflota fyrirtækja.
Hún er hönnuð til notkunar í farartækjum sem vinna við erfiðar aðstæður í hvaða veðurfari sem er.
Olían er samsett úr einstæðum hágæðagrunnolíum og hágæðaíblöndunarefnum og veitir frábæra vernd gegn vélarsliti og soramyndun.
Helstu kostir
VANELLUS C6 GLOBAL PLUS hefur eftirtalda kosti:
*
Fjölhæfni: Olían er ætluð til notkunar bæði á dísil- og bensínvélar í þungaflutningabílum, sendibílum, fólksbílum, vinnuvélum og öðrum vélbúnaði.
*
Olían heldura vélum hreinum, sótar litið og veitir góða slitvörn í vélum bæði með og án forþjöppu og eykur þannig endingu þeirra og dregur úr viðhaldskostnaði.
*
Eldsneytissparandi í samanburði við venjulega 15W – 40-jarðefnaolíu og stuðlar þannig að lægri reksturskostnaði.
* Minni eldsneytisnotkun og minni útblástur stuðlar að aukinni umhverfisvernd.
*
Þykktarstigið SAE 10W – 40 stuðlar að góðu olíuflæði við lágan hita og skjótri smurningu við kaldræsingu.
* Langur tími má líða milli smurolíuskipta samkvæmt leiðbeiningum vélaframleiðenda.
Tæknilýsing
VANELLUS C6 GLOBAL PLUS fullnægir eftirtöldum tæknikröfum:
* API CI-4/SJ * ACEA E3/E5/B3/B4/A3 * MB 228,3
* MAN M3275 * Volvo VDS-2 * Cummins CES 20071/2/6/7
* Mack EO-M Plus * RVI RLD * MTU Type 2
* VW 500.00/505.00 Type Performance * ZF TE-ML-03A
Pakkningar: 4 l, 20 l, 208 l
