Havoline_synthetic

Havoline Synthetic

Samþætt vélaolía

LÝSING: HAVOLINE SYNTHETIC-olía er unnin úr bestu gerð af samþættum olíum með háþróuðum bætiefnum sem gera meira en að fullnægja ströngustu kröfum sem gerðar eru til smurningar fólksbílavéla sem vinna undir mjög miklu álagi.

HAVOLINE SYNTHETIC er afar hitaþolin svo að hún brotnar ekki niður við mjög háan hita í vélinni. Auk þess er uppgufunartap í lágmarki og þar með olíunotkun.

HAVOLINE SYNTHETIC reynist afar vel við lágt hitastig, en það tryggir auðvelda kaldræsingu, og að olían komist strax á slitfleti vélarinnar, lítið viðnám og þar með aukinn eldsneytissparnað.

HAVOLINE SYNTHETIC veitir bestu smurningu við mismunandi álag og hitastig. Það tryggir hámarksvörn gegn sliti, aukna endingu vélarinnar og minni mengun.

NOTKUN: HAVOLINE SYNTHETIC hentar mjög vel fyrir allar fólksbíla- og vörubílavélar, jafnt bensín- sem dísilvélar með og án forþjöppu og hvarfakúts.

HAVOLINE SYNTHETIC blandast vel öllum vélaolíum unnum úr jarðolíu en miklir kostir hennar nýtast aðeins ef hún er notuð án blöndunar við jarðolíur (mineralskar olíur).

HAVOLINE SYNTHETIC hefur hlotið fulla API-viðurkenningu og er því merkt með API-merkinu.

VIÐURKENNINGAR OG PRÓFANIR: Havoline Formula3 Synthetic-olía hefur verið prófuð ítarlega á markaðnum og hefur hlotið viðurkenningu ACEA og API, m.a. fyrir að halda vélinni afar hreinni og spara eldsneyti.

Auk þess fullnægir olían margvíslegum stöðlum:

ACEA A3-98/B3-98
API SJ/CF
VW 500.00/502.00/505.00
MB 229.1
BMW Long Life
Daimler Benz, Ford, GM, Porsche, Rover, Toyota, Nissan, Peugeot, Renault, Fiat o.fl.

Pakkningar: 1 l, 4 l, 20 l, 60 l, 208 l.


havoline_synt_5w_40



Þetta vefsvæði byggir á Eplica