Havoline_energy

Havoline Energy 5W-30

Léttflæðiolía sem sparar eldsneyti

LÝSING: HAVOLINE ENERGY er hálfsamþætt eldsneytissparandi vélaolía með mjög litlu viðnámi og byggð á nýrri og einstakri smurolíutækni. Þessi nýja tækni á mikinn þátt í að minnka eldsneytisnotkun meira en næst með notkun hefðbundinna eða samþættra vélaolía. Havoline Formula3 Energy olían býr yfir einstökum eiginleikum til hitatilfærslu um leið og hún lágmarkar viðnám og annað orkutap vélarinnar.

Þetta veldur því að vélar smurðar með HAVOLINE ENERGY eru afburða öruggar í rekstri og eldsneytissparnaður er umtalsverður. Havoline Formula3 Energy hefur afbragðs góða lághitaeiginleika sem auðveldar kaldræsingu samtímis því að slitfletir fá smurningu fljótt. Þannig næst afbragðsgóð slitvörn og líftími vélarinnar lengist við allar aðstæður. Havoline Formula3 Energy er framleidd í nánu samstarfi við helstu vélaframleiðendur og dregur úr koltvísýringsútblæstri vegna minni eldsneytis- og olíueyðslu.

NOTKUN: HAVOLINE ENERGY hentar mjög vel á vélar í öllum einka- og sendibílum, bæði bensín- og dísilvélar með eða án forþjöppu og hvarfakúts.

HAVOLINE ENERGY er prófuð í samvinnu við margar evrópskar bifreiðaverksmiðjur og eldsneytissparnaður hefur mælst allt að 9% miðað við þær olíur sem áður voru notaðar. Fjölmörg kappaksturslið hafa prófað og viðurkennt olíuna því hún eykur vinnsluna í vélunum og þar með sigurlíkurnar.

HAVOLINE ENERGY er merkt með API-merkinu ("kleinuhringnum") sem orkusparandi vara.

VIÐURKENNINGAR OG PRÓFANIR: HAVOLINE ENERGY hefur í prófunum af öllu tagi náð æðstu ACEA og API viðurkenningum markaðarins fyrir að uppfylla ýtrustu kröfur um hreina vél og eldsneytissparnað. Olían uppfyllir auk þess fjölmarga alþjóðlega staðla:

ACEA AI-98/B1-98
API SJ/Orkusparnaður
ILSAC GF-2
FORD WSS-M2C9-12-A1
FORD WSS-M2C9-13-A

Þar að auki er mælt með HAVOLINE ENERGY í aðra einkabíla, ef framleiðendurnir viðurkenna ekki sjálfir olíurnar heldur vísa til alþjóðlegra viðurkenninga og tímabila milli olíuskipta. Þetta á t.d. við um Rover og Jaguar.

Pakkningar: 1 l, 4 l, 20 l, 208 l


havoline_energy



Þetta vefsvæði byggir á Eplica