Havoline Extra 10W/40
SubtitleHálfsamþætt fjölþykktarolía fyrir bensín- og dísilvélar
LÝSING: HAVOLINE EXTRA er léttleikavélaolía byggð á nýjustu tækni hálfsamþættrar grunnolíu. Í olíunni er háþróuð bætiefnablanda og útkoman verður vélaolía sem uppfyllir ítrustu kröfur vélaframleiðenda.
HAVOLINE EXTRA hefur marga kosti fram yfir vélaolíur byggðar úr grunnolíum, hún er mjög hitaþolin og býr yfir úrvals eiginleikum bæði við mjög háan og lágan hita. Uppgufun er mjög lítil og það dregur úr olíuneyslu.
HAVOLINE EXTRA býr yfir úrvals eiginleikum við mjög lágan hita en það tryggir auðvelda gangsetningu, hratt olíustreymi, litla mótstöðu og þar með minni eldsneytiseyðslu. HAVOLINE EXTRA stuðlar að því að halda vélinni hreinni að innan og tryggir mjög góða smureiginleika bæði við mjög lágan og mjög háan vinnuhita. Hún veitir vélinni hámarksvörn og minnkar hættu á vélarbilunum.
NOTKUN: Sérstaklega er mælt með HAVOLINE EXTRA á allar fólks- og flutningabílavélar, bæði bensín og dísilvélar með eða án forþjöppu eða hvarfakúts.
HAVOLINE EXTRA má blanda saman við allar vélaolíur úr jarðolíum, en skilar aðeins hámarksafköstum ef hún er notuð óblönduð.
HAVOLINE EXTRA hefur m.a. verið prófuð með mjög góðum árangri gagnvart fyrirbærinu svartri leðju, sem getur komið fram í nýjum lágútblástursbensínvélum. Þegar þessi nýja véltækni, erfið akstursskilyrði og löng tímabil á milli olíuskipta fara saman getur það eyðilagt sumar tegundir vélaolíu.
VIÐURKENNINGAR OG PRÓFANIR: HAVOLINE EXTRA hefur gengið í gegnum fjölda prófana vegna nútíma bílvéla og uppfyllir kröfur ACEA og API gæðaflokkunar um eldsneytiseyðslu. Hún uppfyllir einnig kröfur á borð við:
ACEA A3-98, B3-98
API SJ/CF
VW 500.00/505.00
BMW, Porsche o. fl.
MB 229. l
HAVOLINE EXTRA er merkt með API tákninu ("kleinuhringnum") sem þýðir að hún er orkusparandi.
Pakkningar: 1 l, 4 l, 20 l, 60 l, 208 l.
