Havoline Premium 20W-50
Fjölþykktarolía fyrir bensín og dísilvélar
LÝSING: HAVOLINE PREMIUM er framleidd úr hreinsuðum paraffín-grunnolíum sem í er bætt háþróuðu bætiefnasambandi, en ásamt nýju seigjubætiefni tryggir það olíu með mjög miklu klippiþoli (þ.e. þoli gegn þeirri tilhneigingu þrýstiflata að klippa sundur olíuhimnuna.)
HAVOLINE PREMIUM veitir vélum framúrskarandi smurningu, einnig við erfið álagsskilyrði. Þessi hágæðaolía er gædd bestu smurningseiginleikum sem þekkjast fyrir nýjustu bílvélar.
HAVOLINE PREMIUM hefur staðist prófanir og hlotið viðurkenningu fjölda vélaframleiðanda og alþjóðlegra staðla
NOTKUN: Mælt er með HAVOLINE PREMIUM fyrst og fremst til að smyrja hraðgengar fjórgengisbensínvélar, þar á meðal forþjöppuvélar.
HAVOLINE PREMIUM SAE 20W-50 má nota á vélar þar sem mælt er fyrir um gæðaflokkun samkvæmt API SH/SG/CD og/eða CCMC G4/PD2.
HAVOLINE PREMIUM er merkt með API tákninu (kleinuhringnum) sem þýðir að hún er orkusparandi.
VIÐURKENNINGAR OG PRÓFANIR: HAVOLINE PREMIUM hefur m.a. hlotið viðurkenningu og staðist prófanir samkvæmt eftirfarandi gæðaflokkun:
API ASEA og API SH/CF
ACEA A2-96, B2-96
VW 501.01/505.00
MB 229.1
Daimler Benz 226.1/226.5 (Multigrade)
Ford SSM-2C-9011A (Multigrade)
British Leyland BLS 22.0L.02/06
Pakkningar: 1 l, 4 l, 208 l.

