Havoline Ultra S
Sýnþetísk "Low SAPS" vélasmurolía
HAVOLINE ULTRA S er hágæða fjölþykktar smurolía gerð úr sýnþetískum grunnolíum og nýjustu kynslóð bætiefna: "Low SAPS" ACEA C-3.
Olían er þróuð til að ná sem bestri endingu bílvéla nútímans og framtíðarinnar - þar með taldar vélar með sótsíum (PDF) eða öðrum mengunarvarnabúnaði.
Einstök samsetning HAVOLINE ULTRA S tryggir virkni og endingu sótsía og hvarfakúta, sem nú eru í flestum nýjum bílum. Einstakir hreinsi- og smureiginleikar olíunnar þýða að vélin endist lengur en ella, þrátt fyrir mismunandi rekstrarskilyrði.
Seigjusvið HAVOLINE ULTRA S þýðir að hún stendur sig jafn vel í hitum suðurlanda og í nístingskulda nyrstu byggða.
HAVOLINE ULTRA S má nota á stóran hluta íslenska bílaflotans, mjög marga fólksbíla og minni sendiferðabíla, en það er sérstaklega mælt með olíunni á nýrri árgerðir BMW og Benz, án eða með sótsíu.
Þá er olían "afturvirk", uppfyllir kröfur sem gerðar eru vegna eldri árgerða BMW bensín- og díselvéla þar sem t.d. er mælt fyrir um "BMW Longlife-01".
HAVOLINE ULTRA S má nota á Renault og Hyundai vélar með sótsíum eða þar sem mælt er fyrir um að nota olíu sem uppfyllirACEA C-3 kröfur.
Varðandi tíma á milli olíuskipta vísast til fyrirmæla í eigandahandbók.
HAVOLINE ULTRA S uppfyllir kröfur:
ACEA A3/B4
ACEA C-3
API SM / CF
BMW Longlife-04
DaimlerChrysler MB 229.31
VW 502.00 / 505.00
