VANELLUS C5 GLOBAL
Fjölþykktarolía á dísil- og bensínvélar
NOTKUN: VANELLUS C5 GLOBAL er hágæða SAE 15W-40 vélaolía til notkunar á bensín- og dísilvélar.
Olían er gerð úr hágæðajarðolíu og blönduð frábærum íblöndunarefnum til að uppfylla þarfir nútíma dísil- og bensínvéla.
Olían hefur gott viðnám gegn þykknun, botnfalli við háan hita, soramyndun, skemmdum á olíunni og tæringu.
VANELLUS C5 GLOBAL er ætluð til notkunar á nútíma dísilvélar í vinnuvélum og bílum hvort sem eru á vegum og utan vega. Hún stuðlar að betri endingu fjórgengisdísilvéla sem þýðir lengri vinnustundafjöldi milli vélaupptekta á vélum sem vinna við mikinn hraða og mikið álag og einnig í styttri ferðum sendibíla.
Einnig er mælt með henni til notkunar á bensínvélar þannig að unnt er að nota eina smurolíutegund á blandaðan bílaflota.
HELSTU KOSTIR: Vanellus C5 Global hefur eftirtalda kosti:
* Fjölhæfni: Olían er ætluð til notkunar bæði á dísil- og bensínvélar í þungaflutningabílum, sendibílum, fólksbílum, vinnuvélum og öðrum vélbúnaði.
* Olían heldur vélum hreinum, sótar litið og veitir góða slitvörn í vélum bæði með og án forþjöppu og eykur þannig endingu þeirra.
* Veitir góða vörn gegn soramyndun við lágan hita í vélum sem sífellt er verið að ræsa og stöðva.
TÆKNILÝSING: VANELLUS C5 GLOBAL fullnægir eftirtöldum tæknikröfum:
* ACEA E2/B2/A2
* API CG-4/CF/SH
* MB 228,1
* MAN 271
* Volvo VDS
* VW 501.01/505.00 Type Performance
* Mack EO-L
* MTU Type 1
* MTU/ DDC Category 1
Pakkningar: 1 l, 4 l, 20 l, 208 l.
