URSA EXTRA DUTY
Vélaolía fyrir tvígengis-dísilvélar
LÝSING: URSA EXTRA DUTY er unnin úr mjög hreinsaðri hágæðajarðolíu sem í er bætt bætiefnaskammti sem hreinsar vélina, heldur henni hreinni, ver hana gegn ryðmyndun og tryggir lágmarksslit.
URSA EXTRA DUTY er ekki aðeins hönnuð til að fullnægja kröfum vélaframleiðenda og rúmlega það, heldur að miklu leyti til að sjá vélinni fyrir virkri slitvörn og hámarkshreinsun á öllum endingartíma sínum.
NOTKUN: URSA EXTRA DUTY er hönnuð til notkunar í Detroit-tvígengisdísilvélum, bæði með og án forþjöppu, þar sem krafa er um nýjustu tæknilýsingu á smurolíum, API CF-2. URSA EXTRA DUTY 40 hentar því fyrir Detroit-dísilvélar af eftirtöldum gerðum: 53, V53, 71, V71, 92 og 149.
URSA EXTRA DUTY SAE 30 má gjarnan nota á sömu vélargerðir þar sem umhverfishiti er lágur. URSA EXTRA DUTY má einnig nota til að smyrja gírbúnað í iðnaði og fyrir dælur og keðjur eða þar sem mælt er með hreinsandi smurolíu.
VIÐURKENNINGAR: URSA EXTRA DUTY hefur hlotið eftirtaldar viðurkenningar: API CF og CF-2, samsvarar API CD og CD-II. (Detroit-tvígengisdísilvélar) URSA EXTRA DUTY samsvarar Allison C-4 og má auk þess nota hana til að smyrja búnað sem útheimtir viðurkenningar CAT TO-2, svo sem gírkassa, skiptingar, drifúttak, mismunardrif o.fl.
Pakkningar: 20 l, 208 l.
