Super Universal tractor Oil

Alhliða olía fyrir dráttavélar


LÝSING: SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL PREMIUM er dæmi um nýjustu þróun við að sameina mótorolíu, gírolíu og vökvakerfisolíu í eitt til notkunar á dráttarvélar og önnur landbúnaðartæki.

SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL er framleidd úr vel hreinsuðum grunnolíum ásamt bætiefnasambandi sem gerir olíuna nýtanlega sem alhliða olíu fyrir stóran hluta landbúnaðarvéla í Evrópu jafnt sem Bandaríkjunum.

SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL uppfyllir kröfur API CE/SF gæðaflokkunar fyrir vélar og er því nothæf til að smyrja allar tegundir fjórgengisvéla sem notaðar eru í landbúnaði, einnig dísil-vélar með afgasforjöppu.

SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL uppfyllir ennfremur API GL 3 staðla og GL 4 staðla fyrir gírolíur, en þeir ná yfir langflestar gerðir gírkassa og skiptinga. Undantekningar eru þó skiptingar sem krefjast API GL 5 ásamt SAE 90 og SAE 140.

NOTKUN: SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL nýtist vel sem alhliða olía í landbúnaði þar eð hún uppfyllir allar kröfur fyrir vélar, skiptingar og vökvakerfi í landbúnaðarvélum. Olían er einnig ætluð fyrir bremsur í olíubaði á lang flestar tegundir dráttarvéla sem hafa þannig bremsur.

SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL má nota jafnt fyrir bensín- sem dísilvélar og blandast vel öðrum sambærilegum traktorsolíum.

SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL hefur mjög góða sjálfhreinsandi eiginleika, veitir mikið viðnám gegn sliti og froðu og er hentug til notkunar í köldu vetrarveðri til að auðvelda ræsingu véla, enda hefur hún háa seigjutölu, lágt rennslismark og seigjusvið.

VIÐURKENNINGAR OG PRÓFANIR: SUPER UNIVERSAL TRACTOR OIL hefur staðist fjölda prófana, jafnt alþjóðlegar skilgreiningar sem kröfur framleiðenda, þ.á m:

API CE/SF - CCMC D4/G2 MIL-L-2104C (D), Allison C3/C4, CAT TO-2 Ford M2C 159A/B, M2C 85A, M2C 121A, M2C 41A, M2C 48B, M2C 86A/B, M2C 134D Massey Ferguson M 1127/M1135/M1139/M1141/M1144, John Deere J 20A/J20C/J27A API GL4 ZF TE ML 06 CASE MS 1206/1207.

Pakkningar: 4 l, 20 l, 208 l.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica