Super Outboard MOTOR OIL

Smurolía til íblöndunar í bensín utanborðsvéla


LÝSING: Öskulaus smurolía unnin úr jarðolíu til íblöndunar í bensín utanborðsvéla. Olíuna má blanda í bensín í hlutföllunum 1:50. Hún blandast auðveldlega við bensín í geymi vélarinnar (sjálfblöndun). Í olíunni er blátt litarefni sem gefur til kynna olíuinnihald bensínsins.

NOTKUN: Mælt er með þessari smurolíu á tvígengisutanborðsvélar af öllum þekktum gerðum, allt niður í hlutfallið 2%. Olían er m.a. afgreidd í eins lítra plastbrúsum með kvarða, þannig að auðvelt er að mæla rétt olíumagn fyrir tiltekið magn af bensíni.

Í töflunni er sýnt það bensínmagn sem svarar til eins lítra af olíu í ýmsum blöndunarhlutföllum.

super_outboard_tafla

Auk blöndunar í bensín má einnig nota olíuna í kerfum með sérstökum olíugeymi og beinni olíuinnsprautun eins og algengt er í stórum utanborðsvélum.

Til að smyrja loftkældar tvígengisvélar í sumum vélhjólum, skellinöðrum, keðjusögum, sláttuvélum, trjáklippum o.s.frv. ber, vegna mikils ganghita, að nota sérstaka smurolíu sem inni- heldur öskumyndandi bætiefni, t.d. BP Two Stroke tvígengisolíu.

SÉRSTAKIR KOSTIR:

* Olíuna má nota í lágum hlutföllum, allt niður í 2% af bensíni, sem heldur lykt og reykmyndun í lágmarki.
* Olían blandast bensíni auðveldlega (sjálfblöndun).
* Olían er öskulaus og myndar því ekki útfellingar á kertum og í strokkum.
* Olíuna má nota til blöndunar í bensín og á tvígengisvélar með sérstakan smurolíugeymi (sjálfblöndun).
* Í olíuna hefur verið sett dökkblátt litarefni sem gefur greinilega til kynna olíuinnihald bensínsins.

TÆKNILÝSING, PRÓFANIR OG VIÐURKENNINGAR: Olían hefur verið prófuð og viðurkennd samkvæmt staðlinum NMMA BIA (Boating Industry Assosiation) TCW-II Service Specification eftir prófanir í 40 hestafla vél frá OMC (Outboard Marine Corporation).

Þjónusta og olíuskipti: Mikilvægt er að notað sé nákvæmlega það blöndunarhlutfall sem vélaframleiðandinn mælir með til að tryggja nægilega góða smurningu vélarinnar, einkum milli strokka og bulluhringja. Olíuna má með öryggi nota í hlutfallinu 1:50 þar sem svo er fyrir mælt. Auðveldast er að athuga fyrst hve mikið bensín rúmast í bensíngeymi vélarinnar og bæta svo í hann því olíumagni sem þarf. Olían blandast bensíninu afar vel (sjálfblöndun) og því nægir að hrista geyminn aðeins til þess að tryggja fullkomna blöndun. Mælt er með blýlausu bensíni því að það veldur minni útfellingum í vélinni og minni mengun í umhverfinu. 

GEYMSLA: Geyma ber olíuna innanhúss eða undir þaki og þess skal gætt að tappar og lok séu vel skrúfuð á ílátin til þess að forðast mengun hennar af völdum óhreininda og raka. Olíuílátin má ekki geyma þar sem sól skín á þau og ekki þar sem hitinn er hærri en 60°C eða undir frostmarki.

Pakkningar: 1 l



Þetta vefsvæði byggir á Eplica