Super Two-Stroke
Smurolía til íblöndunar í bensín tvígengisvéla
LÝSING: Olían er framleidd úr blöndu af mjög þykkri jarðolíu og samþættri fjölliðu með viðbótarefnum til að vernda gegn skaðlegum núningi milli bullu og strokks og koma í veg fyrir útfellingu á bullu og bulluhringjum. Auk þess er bætt í olíuna þunnri jarðolíu sem veldur því að hún blandast vel bensíni (sjálfblöndun).
NOTKUN: Olían er einkum ætluð til notkunar í tvígengisvélum í vélsögum, en einnig í öðrum loftkældum tvígengisvélum í bílum, vélhjólum, skellinöðrum, sláttuvélum, trjáklippum o.fl.
Til að smyrja vatnskældar tvígengisvélar, t.d. utanborðsvélar báta, er bent á BP Super Outboard smurolíu.
* Olíuna má nota í lágum hlutföllum, yfirleitt 2% af olíu í bensínið, þ.e. í hlutföllunum 1:50.
* Lítil olía í bensíninu dregur úr myndun lyktar og reyks.
* Olían blandast bensíni auðveldlega (sjálfblöndun).
* Olían veitir góða vernd gegn skaðlegum núningi og sliti bullna og strokka.
* Olían hindrar myndun útfellinga á bullum og festingu bulluhringja.
Olían fullnægir flokkuninni API/CEC TC, en það byggist á prófunum í Yamaha Y-350M2 vél og Yamaha CE 50S vél. Pakkning 1 l.
Leiðbeiningar um blöndunarhlutföll:
Blöndun í % 5 ltr 3 ltr
3% 0,15 ltr 0,09 ltr
4% 0,20 ltr 0,12 ltr
5% 0,25 ltr 0,15 ltr
Til skýringar eru td hlutföllin ef blönun er 3% eftirfarandi: 3 ltr í 100ltr 0,3 ltr í 10 ltr 0,03 ltr í 1 ltr
Þess skal gætt að blanda smuroliunni sem nákvæmast.
