Taro XD
Skipavélasmurolía
LÝSING: TARO XD er framleidd úr blöndu af vandlega völdum paraffin- og naftagrunnolíum. Í hana er blandað bætiefnasambandi sem skipar henni í hærri gæðaflokk en API-CD ásamt TBN við min. 15.
TARO XD hefur ágæta hreinsieiginleika sem tryggja hreint sveifarhús, ventla o.s.frv. Alkalískir eiginleikar olíunnar veita ágæta vörn gegn sliti og öðrum áhrifum af völdum tæringar á löngum gangskeiðum. Í olíunni er oxunarvarnarefni sem hindrar að olían skemmist af völdum oxunar.
NOTKUN: Mælt er með TARO XD fyrir hvers konar miðlungshraðgengar dísilvélar sem nota eldsneyti með brennisteinsinnihaldi að 1,5% hið mesta. Í vissum tilfellum má einnig nota TARO XD fyrir hraðgengar dísilvélar.
EIGINLEIKAR OG KOSTIR Í NOTKUN: Niðurstöður á rannsóknum á nýtingareiginleikum nýjustu gerða miðlungshraðgengra dísilvéla sýna að hinn mikli alkalíski styrkur olíunnar dugar vel til að halda strokksliti í skefjum, vernda legur fyrir tæringu og kemur í veg fyrir útfellingu í vélunum. Olían skilur sig vel frá vatni og hamlar froðumyndun.
Hreinsandi bætiefni: Tryggir hreint sveifarhús, stimpla og ventla. Hindrar að stimpilhringir koxi og festist.
Oxunarvarnarefni: Oxunarvarnarefni halda við smureiginleikum olíunnar á löngum gangskeiðum og vernda vélahluti gegn tærandi áhrifum oxunarefna.
Ryðvörn: Hindrar ryðmyndun á vélahlutum meðan vélin er ekki í notkun.
Pakkningar: 4 l, 20 l, 208 l.
