Taro DP
Skipavélasmurolía
LÝSING: TARO DP er framleidd úr sérvöldum paraffínolíum og bætiefnum sem verja olíuna gegn oxun og veita henni frábæra hreinsi- og dreifieiginleika. Gæðin tryggja gott seigjuþol við háan notkunarhita. Alkalískir eiginleikar olíunnar veita góða vörn gegn tæringarsliti við notkun í langan tíma.
NOTKUN: Mælt er með TARO DP á allar gerðir trunkdísilvéla, þar sem notuð er svartolía (residual fuel) með háu brennisteinsinnihaldi, hvort heldur sem er í skipum eða kyrrstæðum vélbúnaði. TARO DP má einnig nota sem strokkaolíu í krosshausvélar, þar sem gerðar eru kröfur um samsvarandi TBN stig.
EIGINLEIKAR OG KOSTIR Í NOTKUN: Niðurstöður úr nýtnimælingum í nýjustu gerðum miðlungshraðgengra trunkdísilvéla sýna að hið mikla alkalíska þol hamlar vel gegn strokkasliti, ver legur gegn tæringu og kemur í veg fyrir útfellingu í vélunum. Olían skilur sig vel frá vatni og hamlar froðumyndun.
Hreinsi- og dreifibætiefni tryggja hreint sveifarhús, hreina stimpla og ventla. Hindra koxun í stimpilhringjum og að þeir festist.
Oxunartálmar gera það að verkum að smurhæfnin skerðist ekki við lága keyrslu og ver vélarhluta gegn tæringaráhrifum oxunar.
Olían ver vélarhluta ryði þegar vélin er ekki í notkun.
Bætiefni í réttum hlutföllum tryggja góða nýtingu og alhliða vörn. Þau stytta viðhalds- og viðgerðartíma, auka endingu og tryggja hagkvæman rekstur.
Pakkning: 208 l.
