Taro

Taro XL 40

Skipavélasmurolía


TARO XL 40 Skipavélasmurolía TARO XL 40 er mjög alkalísk sveifarhúsolía fyrir miðlungs- og hraðgengar dísilvélar (trunk-type). Hún er samsett úr vandlega hreinsuðum hágæðagrunnolíum ásamt sérþróuðum bætiefnum. TARO XL er aðeins til með SAE 40 seigjusviði.

Meðmæli fyrir notkun: TARO XL 40 fær meðmæli til nota í öllum miðlungs- og hraðgengum dísilvélum sem brenna eldsneyti með yfir 2% brennisteinsinnihaldi. TARO XL 40 er alkalískt blönduð fyrir minnst 40 TBN og API CD gæðamark. Þótt TARO XL 40 sé fyrst og fremst sveifarhússmurolía, hentar hún einnig ágætlega sem strokkasmurolía fyrir hæggengar krosshausvélar sem brenna eldsneyti með litlu brennisteinsinnihaldi.

Seigja: TARO XL 40 er blönduð fyrir þröngt seigjusvið um miðbik SAE 40 seigjustigs. Þetta auðveldar gæðaeftirlit og eftirlit með ástandi notaðrar olíu.

Slitvernd: TARO XL 40 inniheldur gagnprófað efni gegn sliti. Þetta efni dregur úr vélarsliti með því að tempra snertifleti þannig að málmrof helst í lágmarki.

Oxunarþol: Á smurolíum sem eru í sveifarhúsi véla mæðir súrefni, brunaleifar og örsmáar slitlagnir við háan hita, sem í sameiningu stuðla að hraðri olíuoxun. TARO XL 40 er mynduð af mikið hreinsuðum grunnolíum og gagnprófuðu andoxunarefni sem veitir eyðingu af völdum oxunar mikið viðnám.

Tæringarvernd: Brunaleifar, eldsneytisbrennisteinn og loftraki mynda sameiginlega súr efni sem valda hröðu sliti. TARO XL 40 getur varnað þessu tæringarsliti, þegar brennt er eldsneyti með yfir 2% brennisteinsinnihald, með því að afsýra sýruefnin. TARO XL 40 inniheldur einnig bætiefni sem verndar málma, sem næmir eru fyrir háhitatæringu, gegn slíkum árásum. Þegar stöðugt er brennt eldsneyti með minna en 2% brennisteini, er mælt með olíum með lægri basatölu, þ.e. TARO DP eða TARO XD.

Hrein vél: TARO XL 40 hefur að geyma valin hreinsi- og dreifibætiefni sem draga mjög úr stimpilhringjaleifum, hreinsa stimpla, sveifarhús og kambás og stuðla að því að olíuhreinsikerfið starfi eins og vera ber.

Pakkning: 208 l.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica