Castrol HLX

Skipavélasmurolía


LÝSING: Castrol HLX er meðal bestu Castrol-smurolía sem unnar eru úr jarðolíum (mineral based). Olían er sérstaklega gerð fyrir hraðgengar skipavélar og aflstöðvar sem ganga fyrir eimuðu eldsneyti með minna en 1% brennisteini og eiga að skila ítrustu afköstum. Við þróun olíunnar var eitt markmiðanna að uppfylla sérstaklega nýjar kröfur, sem gerðar eru til einþykktar smurolíu, um lengri tíma milli olíuskipta og að ná fram sömu eiginleikum og tengdir hafa verið við sýnþetískar olíur. Castrol HLX fæst bæði sem SAE 30 og SAE 40.

EIGINLEIKAR OG KOSTIR: Castrol HLX smurolían er unnin úr jarðolíum með háum seigjustuðli og þær bættar með úrvals bætiefnatækni. Hreinsieiginleikar olíunnar eru sérstaklega góðir og hún er mjög stöðug gagnvart hita og oxun, eins og nauðsynlegt er í vélum sem vinna undir miklu álagi.

Með notkun á HLX vinnst:

* lengri tími milli olíuskipta
* afbragðs smureiginleikar við háan hita
* einstakt viðnám gegn slífafægingu (bore polishing)
* aukin vörn gegn lakkmyndun
* kostir sýnþetískrar olíu í jarðefnaolíu

VIÐURKENNINGAR VÉLAFRAMLEIÐENDA: Castrol HLX 30 og HLX 40 eru samþykktar af öllum fremstu vélaframleiðendum, þar á meðal eru olíurnar samþykktar sem "Type 2" MTU einþykktar smurolía sem leyfir tvöfalt lengri tíma milli olíuskipta þegar miðað er við hefðbundnar skipavélaolíur.

Bætiefnatækni Castrol HLX tekur fram kröfum staðlanna API CF og ACEA E3 og hefur staðist prófanir samkvæmt MB 228.2, MAN M3275 og Volvo VDS-2.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica