Castrol MHP
Skipavélasmurolía
LÝSING: CASTROL MHP er ný og háþróuð 15BN-vélarolía sem sérstaklega er hönnuð til notkunar í nýjum aflmiklum skipavélum og fjórgengisvélum sem ganga fyrir eimuðu eldsneyti. Þessi endingargóða smurolía er framleidd úr bestu grunnolíum með einstæða blöndu af bætiefnum, sem stuðlar jafnt að hagkvæmni og skilvirkum rekstri. Castrol MHP-olían er fáanleg með seigjunni SAE 30 og SAE 40.
EIGINLEIKAR OG KOSTIR: CASTROL MHP gerir meira en að uppfylla CF-tæknilýsingu API og býður upp á aukna hreinsun, frábæran oxunarstöðugleika og aukna virkni við háan hita. Þessi olía þolir einnig mikið álag og reynist vel í gírum og því má nota hana sem almenna olíu bæði á vélar og aflflutningskerfi.
Frábær reynsla af Castrol MHP leiðir í ljós minni kostnað vegna:
* hreinni stimpilhringja (piston ring belts)
* mjög hreinnar vélar
* minna viðhalds og slits
* aukins viðnáms gegn lakkmyndun á fóðringum
* lengri tíma sem má líða milli viðhalds
