Castrol TLX Plus

Vélasmurolía


LÝSING: CASTROL TLX PLUS Vélasmurolía LÝSING CASTROL TLX PLUS olíur eru af ýmsum gerðum, hannaðar fyrir meðalhraðgengar díselvélar skipa og vélar sem knýja rafala. Í þær eru notaðar hágæðagrunnolíur. TLX PLUS olíurnar innihalda einstæða blöndu af bætiefnum sem ætlað er að vinna gegn erfiðum aðstæðum í vélum með litla smurolíueyðslu sem brenna svartolíu.

TLX PLUS er fáanleg með 20, 30, 40 eða 50 basatölu (BN), SAE 30 og SAE 40 seigju, valið eftir brennisteinsinnihaldi eldsneytisins og kröfum vélaframleiðenda. Einnig er unnt að afgreiða samþykktar gerðir með basatölu 55 eða hærri eftir pöntun.

EIGINLEIKAR OG KOSTIR: Miklar vettvangsprófanir með vélar, sem brenna svartolíu, hafa staðfest að TLX PLUS hentar til notkunar í aflmiklum meðalhraðgengum dísilvélum með forþjöppu sem starfa við mjög erfið-ar aðstæður.

Þessi olía reynist afbragðsvel við allar aðstæður þar sem krafist er smurefna af bestu gæðum:

* Hún gerir meira en að uppfylla tæknilýsingu API CF.
* Frábær slitvörn
* Bættur hita- og oxunarstöðugleiki
* Ryðvörn gegn saltvatni (skv. IP 135B-prófun)
* Mikið álagsþol FZG varðandi slitvörn
* Frábær freyðivörn
* Viðnám gegn vatnsmengun
* Hreinsar og verndar vélina og kemur vel út úr greiningu á notaðri olíu (með aukinni getu til að losa út óhreinindi og vatn í skilvindum)

Meginkostur TLX PLUS er geta olíunnar til að komast yfir vandamál sem koma upp varðandi venjulega olíu í vélum, sem eyða lítilli smurolíu, brenna svartolíu og þar sem eldsneyti berst hugsanlega í sveifarhúsolíuna.

Eldsneytismengun getur valdið myndun á svartri tjörukenndri leðju í sveifarhúsinu, útfellingum á olíuhringjum stimpla, hringjafleti og, það sem verst er, í kælirýmum stimplanna. TLX PLUS er miklu líklegri til að þola tjörukennd mengunarefni sem verður til þess að vélin verður hreinni og miklu minni útfellingar verða á stimplum og lengri tíma má líða milli viðhalds. Olían hefur verulega góð áhrif á stimpilhringjabeltið og að halda rýminu undir stimpilkollinum hreinu.

TLX PLUS er einnig fáanleg með basatölunni 50 (BN 50) eða hærri til notkunar þegar vart verður við ört lækkandi basatölu í vélum sem eyða lítilli smurolíu. Slík olía hefur enn frekari áhrif til að lengja tímann milli olíuskipta.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica