Castrol MLC
Skipavélasmurolía
Lýsing: CASTROL MLC er stöðluð dísilvélasmurolía, hönnuð úr gæðagrunnolíum og margreyndum bætiefnum. Basatala (BN) 12 mg/KOH/g sér fyrir þeirri hreinsigetu sem þörf er fyrir til að koma til móts við aðstæður í hefðbundnum skipadísilvélum og áhrif af því að brenna lakara eimuðu eldsneyti.
EIGINLEIKAR OG KOSTIR: Hreinsieiginleikar CASTROL MLC í dísilvélum uppfylla kröfur API-CD. Álagsþolið uppfyllir álagsstig 11 í FZG A/8.3/90-prófuninni. Vörn gegn oxunartæringu og hitastöðugleiki eru viðunandi í venjulegum vélum og þar sem minni kröfur eru gerðar.
SAMÞYKKI FRAMLEIÐENDA: CASTROL MLC 30- og CASTROL MLC 40-olíur henta mjög vel til notkunar í meðalhraðgengum drifvélum og vélum til að knýja rafala sem ganga fyrir eimuðu eldsneyti.
