Olís-viðskiptakort

Fyrirtækjakort Olís

Greiður aðgangur að góðri þjónustu

Kortið er greiðslukort sem gildir til kaupa á eldsneyti og vörum á um 70 Olís-bensínstöðvum, -verslunum og ÓB-stöðvum um land allt.
Fyrirtækjakort Olís er í þremur mismunandi útgáfum.

  • Græna kortið gildir fyrir allar söluvörur Olís.
  • Gula kortið gildir fyrir eldsneyti og aðrar rekstrarvörur fyrir bifreiðar.
  • Rauða kortið gildir eingöngu fyrir eldsneyti.

Hægt er að skrá kortið á einstakling og getur hann einn þá tekið út á það. Einnig er hægt að skrá kortið á bílnúmer og geta þá allir ökumenn þeirrar bifreiðar tekið út á kortið. Hægt er að nota kortið í kortasjálfsalana sem er að finna á öllum stærstu þjónustustöðvum Olís og einnig á ÓB-stöðvum.

  • Mánaðarlegt reikningsyfirlit Fyrirtakjakort
  • Sundurliðun á virðisaukaskatti
  • Auðvelt eftirlit með kostnaði
  • Öflugt þjónustunet
  • Gildir á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB-ódýrt bensín
  • Greiðslufrestur
  • Sértilboð til korthafa

Flugmíluklúbbur Olís

Flugmíluklúbbur Olís er tryggðarkerfi sem hugsað er fyrir þá einstaklinga sem greiða með Fyrirtækjakorti Olís og tengist klúbburinn Vildarklúbbi Icelandair. Þeir sem skrá sig í Flugmíluklúbb Olís gerast þannig sjálfkrafa meðlimir í Vildarklúbbi Icelandair og rennur þá 1,5% af andvirði viðskiptanna til þeirra í formi punkta í Vildarklúbbi Icelandair.
*Ath. ef greitt er með Fyrirtækjakorti Olís þarf að framvísa Flugmílukorti og renna þá 0,5% af andvirði viðskiptanna til handhafa kortsins.




Útlit síðu:

Tungumál

Vidskiptakort_haus
Þetta vefsvæði byggir á Eplica