Öryggi og gas
Gashylkin og þrýstijafnarinn fara í gegnum gæðaprófun sem uppfyllir alla evrópska öryggisstaðla. Með réttri og ábyrgri notkun tryggir þú hámarks öryggi.
Góð ráð um gashylki
• Gashylki skulu alltaf standa upprétt
• Ávallt skal loka fyrir gasið eftir notkun
• Varist að gashylkið verði fyrir hnjaski eða standi lengi í miklum hita
• Skiptið aldrei um gashylki nálægt opnum eldi
Góð ráð um búnað
• Notið einungis viðurkenndan búnað – DG- eða CE-merktan.
• Sjáið til þess að þrýstijafnarinn sé tryggilega festur
• Verið viss um að búnaðurinn sé í fullkomnu lagi
• Farið reglulega yfi r slöngur og skiptið um þær við minnsta grun um sprungur eða rifur
• Góð regla er að fá fagaðila til að yfi rfara búnað einu sinni á ári
Grunur um gasleka
• Smellugas Olís er með lyktarefni sem greinilega má finna við gasleka
• Gas er þyngra en loft og safnast saman niður við gólf
• Lokið ventli á þrýstijafnara
• Forðist alla notkun elds
• Loftið vel út
• Gætið vel að rafmagni og stöðurafmagni
• Kallið til viðurkenndan þjónustuaðila

