Þjónustustöðvar
Þjónustustöðvar
Olís-þjónustustöðvarnar eru víðs vegar um landið og þar má fá eldsneyti, skyndifæði og þjónustuvörur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfsemi þjónustustöðvanna skiptist í mismunandi þjónustustig og á stærri stöðvunum er bæði boðið upp á sjálfsafgreiðslu og fulla þjónustu á eldsneyti auk annarrar þjónustu við bílinn. Þar eru einnig verslanir fyrir heimilið og veitingastaðir þar sem viðskiptavinir geta tyllt sér niður og notið ljúffengs skyndibita á
borð við Quiznos-báta, hamborgara, samlokur, pylsur og heitt bakkelsi. Á flestum stærri stöðvunum má einnig finna þvottaplan og loft og vatn fyrir bílinn.
Mikið er lagt upp úr því að viðskiptavinir stöðvanna upplifi Olís sem notalegan viðkomustað, sem uppfyllir þarfir þeirra hvort sem er í daglegu amstri eða frítíma. Hjá Olís er ríkuleg áhersla lögð á lipra og góða þjónustu á snyrtilegum þjónustustöðvum. Til að undirstrika markmið þar að lútandi hefur Olís um árabil látið gera þjónustukannanir á stöðvunum og verðlaunað starfsmenn þeirra fyrir góðan árangur í þjónustu.
Einnig hefur þetta nýst til að halda áfram að þróa þjónustuna til að mæta þörfum viðskiptavina.
