Um Olís

Um Olís

Olíuverzlun Íslands hf - Olís

Olís er eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins og eru starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga um 440. Velta ársins 2010 var tæplega 28,8 milljarðar og heildareignir samstæðunnar eru um 15,7 milljarðar.

Olíuverzlun Íslands hf. var stofnað 3. október 1927. Félagið hefur fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi allt frá stofnun þess. Olíuverzlun Íslands er í dag þekktari undir nafninu Olís en starfsemi félagsins er skipt upp í þrjú meginsvið: Sölusvið, vörustýringarsvið og fjármálasvið auk stoðsviða sem eru starfsmannasvið og markaðssvið. Félagið rekur fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB - ódýrt bensín.

Árið 1999 keypti Olís allt hlutafé í Ellingsen og var það sameinað móðurfyrirtækinu árið 2001.

Hlutverk Olís

- er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar og samkeppnishæfar vörur á samkeppnishæfu verði ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um allt land.

Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu með eldsneyti auk ýmissa nauðsynjavara fyrir bíleigendur, vörum til útivistar og ferðalaga ásamt fjölþættri þjónustu við sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtæki um land allt.

Leiðarljós Olís

O - Orka. Félagið hefur fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi frá stofnun þess og hefur markað sér sterka sérstöðu innan orkugeirans í þjónustu við sjávarútveginn og á verslunarmarkaði.

L - Lipurð. Olís rekur sveigjanlegt sölu- og þjónustukerfi um allt land, þar sem lögð er áhersla á fyrirmyndarþjónustu við viðskiptavini félagsins. Félagið kappkostar að bjóða viðskiptavinum sínum vandaðar vörur á samkeppnishæfu verði. Fyrirtækið hefur tvisvar á undanförnum árum orðið í efsta sæti dagvöruverslana hjá Íslensku ánægjuvoginni.

Í - Ímynd. Það er stefna fyrirtækisins að standa vörð um náttúru Íslands. Það er gert með stuðningi við hin ýmsu málefni á sviði náttúruverndar og í daglegri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins. Á undanförnum árum hefur aukin áhersla verið lögð á uppbyggingu heilbrigðrar æsku með stuðningi við íþróttafélög og ýmis líknarfélög vítt og breitt um landið.

S - Samheldni. Olís leggur einnig kapp á góðan aðbúnað og umhverfi starfsmanna, til að tryggja öryggi, heilbrigði og vellíðan þeirra.


Höfuðstöðvar                                    Jöklalager                                         Átöppun

Höfðatorgi - Höfðatúni                     Héðinsgötu 2                                     Hólmaslóð 12    

105 Reykjavík                                   105 Reykjavík                                      101 Reykjavík

Sími: 515-1000                                 Sími: 840-1735                                  Sími: 840-1737

Netfang: olis@olis.is                       Netfang: joklalager@olis.is             Netfang: atoppun@olis.is




hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica