Dótturfélög
ÓB ódýrt bensín
Árið 1996 stofnaði Olís ÓB - ódýrt bensín sem eru mannlausar sjálfsafgreiðslustöðvar og var fyrsta stöðin tekin í notkun við Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Meginmarkmið með stofnun ÓB er að koma til móts við viðskiptavini sem vilja ódýrara eldsneyti og minni þjónustu þar sem lögð er áhersla á að stöðvarnar séu bjartar og snyrtilegar, að aðgengi að þeim sé gott og sjálfsalar einfaldir í notkun.


