Ellingsen

Ellingsen

EllingsenÁrið 1999 kaupir Olíuverzlun Íslands allt hlutafé í Ellingsen. Ellingsen var stofnað árið 1916 og er eitt af elstu fyrirtækjum starfandi í Reykjavík. Í upphafi var meginhlutverk þess að sérhæfa sig í sölu á veiðarfærum og öðru því er tengdist útgerð. Fyrirtækið varð brátt vel metið og eignaðist stóran og tryggan hóp viðskiptavina um land allt, og víða erlendis. Mátti það að mestu þakka einstökum mannkostum stofnandans, en hann þótti ákaflega heiðarlegur og traustur í viðskiptum og ekki síst duglegur og eljusamur. Árið 1934 lét Othar af starfi og við tók sonur hans og alnafni, Othar Ellingsen. Hann stýrði fyrirtækinu í 58 ár, eða til ársins 1992, en þá tók sonur hans, Óttar Ellingsen, við.

Ellingsen_fullthus_230506

 

Í lok ársins 2001 var rekstur Ellingsen sameinaður móðurfyrirtækinu, Olíuverzlun Íslands hf. Á sama tíma var farið í endurskipulagningu á þjónustu við sjávarútveginn með það að markmiði að veita heildarþjónustu til útgerðarinnar og var því ákveðið að skilja að útgerðarþjónustu og verslunina og færa heildsölustarfsemi á útgerðarvörum yfir á sölusvið Olís. Ellingsen-verslunin hafði í nokkur ár breytt um takt og hafið sölu á vörum tengdum útivist og var ákveðið að efla verslunina enn frekar á þeim vettvangi.

 

Til að efla enn frekar Ellingsen sem útivistarverslun var rekstur Evró keyptur, sem í mörg ár hafði verið leiðandi í sölu ferðavagna og -tækja á Íslandi, ásamt Sjóbúðinni á Akureyri, Útivist og veiði, J. Vilhjálmsson og Veiðiland. Þessi fyrirtæki hafa nú öll verið sameinuð undir nafni Ellingsen sem verður með megináherslu á ferða- og útivistarvörur, útivistarfatnað,  ferðavagna og -tæki, sportveiðivörur, gasvörur og aðrar vörur fyrir heimili og sumarbústaði. Í júni 2006 flutti Ellingsen verslun í stórglæsilegt húsnæði að Fiskislóð 1 og ný verslun var opnuð í höfuðstað norðurlands á Akureyri.





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica