Hátækni

Hátækni

hataekni_nytt 

Hátækni var stofnað árið 1985. Fyrirtækið hefur verið í stöðugum vexti síðustu árin, og velta fyrirtækisins hefur nær tvöfaldast á síðustu þremur starfsárum þess. Árið 2010 var velta fyrirtækisins um 1,9 milljarður.  Þar starfa  tæplega 50 starfsmenn.

 

Hátækni býður upp á mikið vöruúrval og teymi sérfræðinga sem aðstoða og ráðleggja viðskiptavinum okkar. Mikil áhersla er lögð á sérþekkingu starfsfólks á hverju sviði, til að tryggja að viðskiptavinir okkar fá ávallt nýjustu og áreiðanlegustu upplýsingar hverju sinni um vörurnar sem við seljum.

 

Það er stefna Hátækni er að vera í fararbroddi íslenskra fyrirtækja á sviði virðisaukandi hátæknilausna. Hátækni sér fyrirtækjum og einstaklingum fyrir vönduðum heildarlausnum. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugu starfsfólki sem myndar sterka liðsheild og þjónar viðskiptavinum með gæði, þekkingu og heilindi að leiðarljósi. Hátækni á sér traustan hóp viðskiptavina og er í daglegu samstarfi við mörg af stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Hátækni myndaði strax í upphafi afar árangursrík viðskiptasambönd við marga stærstu og virtustu framleiðendur í heimi. Þessi sambönd hafa frá upphafi einkennst af stöðugleika, sem hefur leitt til stöðugra og aukinna viðskipta sem hafa reynst báðum aðilum vel.

 

Ein meginstarfsemi Hátækni er heildsala og dreifing á farsímum, raftækjum af ýmsu tagi og upplýsingatæknivörum. Traustar dreifingaleiðir, þaulreynt starfsfólk og vel búið og skilvirkt vöruhús gera Hátækni kleift að koma til móts við síbreytilegar þarfir markaðarins. Hústæknisvið Hátækni er elsta svið fyrirtækisins og er byggt á hálfrar aldar reynslu af ráðgjöf og sölu á hita- og loftræstibúnaði. Hústæknisvið selur lausnir meðal annars frá Honeywell og Flaktwoods. Í ársbyrjun 2010 var síðan stofnað sérstakt heilbrigðissvið innan Hátækni sem sérhæfir sig í vörum fyrir heilbrigðisstofnanir og rannsóknastofur. Markmiðið þess er að bjóða gæðavörur og góða þjónustu fyrir aðila í heilbrigðisgeiranum.

 

Hátækni rekur sína eigin verslun miðsvæðis í Reykjavík þar sem almenningur getur valið úr miklu úrvali farsíma, sjónvarpa, heimabíókerfa, magnara, hátalara, MP3-spilara o.fl. Hátækni rekur einnig eigin þjónustumiðstöð og verkstæði sem þjónustar og gerir við Nokia síma og Motorola talstöðvar auk annarra tækja.

 

Hátækni er dreifingaraðili fyrir eftirtalin merki á Íslandi: Nokia, Motorola, LG, HTC, Honeywell, Flaktwoods, Belkin, Yamaha, KEF, Chief, Sanus, Microsoft, TDK, Salora, Palladine, Archos, Masimo, Kirsch, Atrium, ADE, Merck, AppliChem, Mettler, Zarges.

 





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica