Litla kaffistofan - besta vegasjoppan
Að mati álitsgjafa Fréttablaðsins er Litla kaffistofan besta vegasjoppa landsins. Samkvæmt frétt blaðsins ber Litla kaffistofan höfuð og herðar yfir bestu vegasjoppur landsins. Litli vinalegi staðurinn á leiðinni austur fyrir fjall á greinilega stað í hjörtum margra og sykraðar pönnuökur og kaffisopi þykir nær hvergi betri á landinu. Nostalgísk stemning sem tilheyrir því að halda á gamalkunnar slóðir. Stefán Þormar Guðmundsson eigandi Litlu kaffistofunnar og fjölskylda hans taka hlýlega á móti ferðalöngum og sjá til þess að þeim líði vel. Þau bjóða upp á heimalagaðar veitingar – kjötsúpu, rjómapönnukökur og alls kyns bakkelsi. Meðal annarra vegasjoppna sem skoruðu hátt var Minni-Borg í Grímsnesi.

