Fréttir

Olís endurgreiðir viðskiptavinum

Þeir viðskiptavinir Olís sem keyptu bensín frá kl. 9:00 föstudaginn 29. maí til kl. 13:00 mánudaginn 8. júní fá 12,50 kr. á hvern lítra endurgreiddar. Í ljós hefur komið að ekki á að skila ríkissjóði hækkuðu bensíngjaldi af þeim birgðum sem félagið átti við lagabreytingu þann 28. maí síðastliðinn

 

Unnið hefur verið að því í samstarfi við greiðslukortafyrirtækin að finna þægilega leið til handa viðskiptavinum að framkvæma endurgreiðsluna.  Endurgreiðslan  mun fara fram eins og hér segir :

1.      Viðskiptavinir sem greiddu með debet eða kreditkortum munu fá innborgun inn á kort sín á næstu dögum. 
2.      Þeir sem greitt hafa með Olískorti fá kreditfærslu inn á viðskiptareikning sinn sem dregst frá næstu greiðslu.
3.      Þeir sem versluðu við ÓB með ÓB lykli munu fá endurgreiðslu inn á tengt greiðslukort.
4.      Þeir sem greiddu með ÓB Frelsi munu fá endurgreitt inn á inneignarreikning sinn.
5.      Þeir sem staðgreiddu geta framvísað kvittunum sínum á næstu þjónustustöð Olís sem mun koma upplýsingum áfram til höfuðstöðva eða hringt í símanúmer 515-1000 og gefið þar upp nauðsynlegar upplýsingar þannig að leggja megi endurgreiðslu inn á bankareikning viðskiptavinar. 


Endurgreiðslan á aðeins við til þeirra sem keyptu bensín, enda var álagning skatts á díesel olíu rétt framkvæmd.

Olís biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem viðskiptavinir félagsins hafa orðið fyrir.





hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica