Fréttir
Verðlækkun hjá Olís
Stefna Olís er að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt samkeppnishæft verð og góða þjónustu.
Félagið lækkar því bensínverð um kr. 12,50 á lítra með vsk og tekur því á sig tímabundið, af samkeppnisástæðum, skattahækkun sem tók gildi 28. maí sl.
Félagið vill um leið árétta að óeðlilegt er að svo stór skattabreytting hins opinbera mismuni söluaðilum eftir birgðastöðu.

