Hjólreiðakeppni í tengslum við landsmót UMFÍ á Akureyri
Keppnin ræst frá Olís Langatanga, Mosfellsbæ
Í tengslum við 26. Landsmót UMFÍ á Akureyri 9.-12. júlí 2009 verður efnt til lengstu hjólreiðakeppni ársins. Keppnin er liður í því að minnast þess að eitt hundrað ár eru liðin frá því að fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri.
Um liðakeppni er að ræða og eru tveir hjólreiðamenn í hverju liði, sem skiptast á að hjóla leiðina sem er um 430 km, auk ökumanns sem fylgir hverju liði eftir á leiðinni. Liðsmenn ráða því hvort þeir hjóla saman eða skiptast á um að hjóla á leiðinni.
Keppnin fer fram á hefðbundnum götuhjólum og hvert lið má hafa fjögur hjól meðferðis auk varahluta.
Liðin verða ræst af stað að morgni 8. júlí frá bensínstöð Olís Langatanga í Mosfellsbæ. Olís styrkir ferðina með eldsneyti á bílana sem fylgja hverju liði. Áætlað að öll lið verði komin fyrir miðnætti sama dag til Akureyrar. Keppnin endar við Olís, Tryggvabraut, Akureyri
rein

