Fréttir

Frábær fiskidagur á Dalvík

olis_fiskidagurÞað var líf og fjör á Dalvík um helgina þegar hin árlega hátið, Fiskidagurinn mikli var haldinn í prýðisveðri. Það eru margir landsmenn á þeirri skoðun að þetta sé ein skemmtilegasta hátið sumarsins enda gríðalega vel tekið á móti gestum hátíðarinnar og flest hús bæjarins opin uppá gátt fyrir gesti og gangandi. Bylgjan með Hemma Gunn og Svansý í fararbroddi var að sjálfsögðu stödd á svæðinu og dregið var úr innsendum stimpilkortum Ævintýraeyjunnar í vikulegum þætti þeirra. Þeir sem hlutu vinninga voru, Páll Hreiðarsson en hann vann 120.000 Vildarpunkta Icelandair og Þorbjörg Tinna Hjaltalín en hún vann Nokia 5800 XpressMusic snertisíma frá Hátækni. Við óskum þessum vinningshöfum til hamingju sem og Dalvíkingum öllum með vel heppnaða hátíð. Á myndinni má sjá þó dökk sé að miklar annir voru á Olís stöðinni á Dalvík þessa og þökkum við öllum þeim sem lögðu leið sína til okkar fyrir viðskiptin. 



hausamynd_4

Leita á vefnum


Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica