Fréttir

Breiðholtsdagar í Olís í Mjódd

 Í tilefni Breiðholtsdaga, sem haldnir eru í sjöunda sinn frá 19.-25. október 2009, mun Olís í Mjódd brydda upp á ýmsu af þessu tilefni, auk þess að minna á ýmsa þætti í okkar þjónustu. Stöðin er hluti af hverfinu og við leggjum mikinn metnað í að þjóna íbúunum vel og halda okkar nánasta umhverfi fallegu og snyrtilegu.  

Bergþóra Linda verslunarstjóri Olís í Mjódd hefur sent bréf til allra íbúa Breiðholts ásamt tilboðsmiðum.  Þar kemur fram að á meðan á Breiðholtsdögum stendur bjóðum við 5 kr. afslátt af eldsneytislítranum, 20% afslátt af öllum Quiznos-réttum og tvöfalda Vildarpunkta fyrir meðlimi í Vildarklúbbi Icelandair*. Þessi tilboð fást gegn framvísun miðanna sem sendir voru með ofangreindu bréfi

Sérfræðingur frá Sonax veitir faglega ráðgjöf á bóni og hreinsivörum fyrir bíla fös. 23. okt. kl. 14-18.

 

*Gildir aðeins á Olís-stöðinni í Mjódd dagana 19. okt.–1. nóv. 2009 gegn framvísun tilboðsmiða.


hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica