Söfnun á kertaafgöngum fyrir kertagerð Sólheima
Móttaka á bensínstöðvum Olís
Kertaafgöngum er hægt að skila í sérmerktar tunnur á bensínstöðvum Olís. Nokkuð fellur til af ýmsum kertaafgöngum, kertastubbum og ónothæfum kertum á hverju heimili. Það er óþarfi að henda þeim því þá er hægt að endurvinna. Allir kertaafgangar sem safnast á bensínstöðvar Olís fara til Kertagerðar Sólheima í Grímsnesi sem á sér 30 ára sögu í kertagerð og veitir að jafnaði 8 einstaklingum með fötlun atvinnu og starfsþjálfun. Kertaafgangarnir eru nýttir í framleiðslu á nýjum kertum.

