Mottumars hjá Olís
Krabbameinsfélagið hleypti af stokkunum átaki í mars undir heitinu mottumars en því ætlað að minna karlmenn á hættuna á krabbameini í þeirra röðum. Skorað er á karla að safna yfirvaraskeggi sem krabbameinsfélagið kýs að kalla mottu í þessu átaki. Alls hafa safnast þegar þetta er skrifað rúmlega 26 milljónir með áheitum. Nokkrir starfsmenn Olís hafa verið þátttakendur í átakinu og hlotið fyrir vikið aðdáun annara starfsmanna. Á myndinni má sjá stóran hluta hópsins en nokkra vantar á myndina. Í lok mars verður svo mottukóngur Olís krýndur en þann titil hlýtur sá sem þykir hafa skarað fram úr bæði í skeggvexti og umhirðu.
Smellið á myndina til að stækka hana.


