Fréttir

Eldsneytisverð

Eldsneytisverð

Olís hækkar í dag verð á bensíni um 3 krónur á lítrann.  Eftir hækkun er algengasta bensínverð hjá Olís í sjálfsafgreiðslu  208,9 krónur á lítrann.  Þá rekur félagið einnig ÓB sem ávallt býður sambærilegt verð samanborið við það sem er ódýrast á markaðinum hverju sinni.  

Því hefur ranglega verið haldið fram að eldsneytisverð á Íslandi sé hátt í alþjóðlegum samanburði.  Samkvæmt upplýsingum sem teknar voru af vefnum  http://www.benzinpriser.nu/ nú í morgun, þá er bensínverð á Íslandi með því lægsta sem gerist í Evrópu eins og sést glöggt á meðfylgjandi grafi. Smellið á myndina til að stækka hana.

Olíuverzlun Íslands vekur athygli á að yfir helmingur af verði hvers bensín og diesel olíu lítra er skattheimta og rennur til ríkisins.  Félagið þarf að kaupa vöruna, flytja hana til landsins og reka sölu og dreifikerfi fyrir þann hluta eldsneytisverðsins sem ekki rennur í ríkissjóð

Olíuverzlun Íslands býður upp á margskonar tryggðarafslætti í gegnum ÓB lykil, staðgreiðslukort, ÓB frelsi, hópakort og almenn viðskiptakort.

Olíuverzlun Íslands mun hér eftir sem hingað til að keppast við að bjóða viðskiptavinum samkeppnishæft verð og góða þjónustu.



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica