Fjáröflunarvörur Olís
Nú er sá tími sem félög og hópar undirbúa sumarstarfið og þar eru sumir stórtækari en aðrir og stefna jafnvel á keppnis - og utanlandsferðir. Þá vinna margar hendur létt verk við að selja ættingjun, vinum og nágrönnun varning ýmisskonar til fjáröflunar. Olís hefur um langt skeið útvegað fjáröflunarvörur á góðum kjörum. Í þeim flokki hafa hreinlætisvörur verið vinsælastar og þá helst salernis- og handþurrkur. Þeim sem huga að fjáröflun er bent á að þeir geta haft samband við sölumann rekstrarvörudeildar Olís í síma 840 1705 eða 896 2524 og leitað tilboða.

