Fréttir
Vorfuglar á Olís Akureyri
1. maí efndu Tían bifhjólaklúbbur norðuramts og MC. Nornir mótorhjólaklúbbur kvenna á Norðurlandi til hópaksturs á Akureyri. Að þessu sinni söfnuðust meðlimir klúbbanna saman við þjónustustöð Olís Akureyri. Að loknum akstri um götur Akureyrar var safnast aftur saman við Olís og eftir að bætt hafði verið vökva á menn og hjól, var haldið til Húsavíkur. Um 70 hjól voru við stöðina þegar mest var og aðrir viðskiptavinir söfnuðust einnig saman til að skoða herlegheitin.
Klúbbarnir eru með Hópakort Olís og eru svo sannarlega skemmtileg viðbót í viðskiptamannaflóruna okkar. Daglega má sjá að jafnaði nokkur mótorhjól fyrir utan þjónustustöð Olís og vekur það alltaf jafn mikla eftirtekt.
Meðfylgjandi myndir af heimsókninni tók Páll Brynjar Pálsson starfsmaður Olís.
Meðfylgjandi myndir af heimsókninni tók Páll Brynjar Pálsson starfsmaður Olís.

