Vinningshafar Ævintýraeyjunnar 19. júní
Í þætti Hemma Gunn og Svansýjar laugardaginn 19. júní voru dregnir út tveir vinningshafar og þeir heppnu að þessu sinni voru Ástríður Johnsen en hún hlaut 75.000 Vildarpunkta Icelandair og Steinar Þór Guðjónsson sem vann sér inn eldsneyti fyrir 20 þús. kr. hjá Olís. Við óskum þeim til hamingju með vinningana. Á vef Ævintýraeyjunnar má nálgast upplýsingar um leikinn, vinningana og vinningshafa en nöfn þeirra verða birt á síðunni strax að loknum útdrætti á laugardögum. Næsta laugardag senda Hemmi og Svansý út frá Sólseturshátíð í Garðinum á Reykjanesi og verða þá dregnir út 50.000 Vildarpunktar Icelandair og Smellugas 10 kg.

