Vinningshafi í HM leik
Olís, Icelandair og Visa brugðu á leik í tilefni Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Leikurinn gekk útá það að þeir sem versluðu með Vildarkorti Visa og Icelandair á einhverri af þjónustustöðum Olís fóru sjálfkrafa í pott og áttu möguleika á að vinna ferð og gistingu til Suður Afríku og miða á sjálfan úrslitaleikinn á HM. Flogið er út þann 9. júlí og heim aftur þann 13. júlí. Vinningshafinn í leiknum heitir Smári Viðar Grétarsson og ætlar hann að taka 14 ára son sinn með sér. Við óskum þeim feðgum innilega til hamingju með vinninginn og óskum þeim góðrar ferðar.


