Fréttir

Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sigraði í Pop-Quiz

Sæunn(til hægri) tekur við vinningnum úr hendi Heiðu Óladóttur.

Hún kom sá og sigraði hún Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir þegar hún hreppti fyrsta vinninginn í Quiznos leik sem unnin var í samvinnu við FM957. Leikurinn sem kallaðist Pop-Quiz gekk útá það að skila inn þátttökuseðli með 3 réttum svörum við jafnmörgum spurningum en seðlarnir fengust á Quiznos stöðvum Olís. Sex föstudaga voru dregnir út vinningshafar sem hlutu sjálfkrafa máltíð fyrir tvo á Quiznos.

Það þurfti hinsvegar að svara nokkrum vel völdum Pop-Quiz spurningum í beinni í morgunþætti FM 957 til að hljóta aðalvinninginn sem var, máltíð fyrir 2 á Quiznos, 15.000 kr. bensínúttekt hjá ÓB, útivistargræjur frá Ellingsen fyrir 40.000 kr. og ferð fyrir 2 til Ibiza að verðmæti 250.000 kr. Það var svo eins og áður sagði hún Sæunn sem sló rækilega þegar hringt var í hana og gerði sér lítið fyrir og nældi sér í aðalvinningin. Við óskum henni innilega til hamingju með vinninginn og þökkum öllum þeim sem tóku þátt í leiknum. 



hausamynd_4

Útlit síðu:

Tungumál

Þetta vefsvæði byggir á Eplica